Komnir til Killybegs,alveg eins og höfn á Íslandi

26.06.09

 

Sigldum frá Baltimore um morgunninn , kláruðum afganginn af morgunmatnum frá deginum áður en lagt var í hann . Ágætis leiði (eitthvað sjómanna mál sem ég skil ekki)

Kátir og glaðir

 Lagt af stað 007 Belgseglið uppi Lagt af stað 063 Baltimore um morgunnin  

27.06.09

Byr þokkalegur miðar okkur sæmilega áfram.  Sáum fullt af Höfrungum við bátinn  í dag sem renndu sér meðfram bátnum og stukku upp úr sjónum í leik sínum.

Lagt af stað 120

Höfrungar í sjónum

Var það gott í sjóninni að tekin voru upp eldunaráhöld og byrjað að kokka mat, Stóð Jón þar fremstur í flokki við eldamennskuna og galdraði framm þennan fína pulsuéegveitekkihvað rétt.

Var þessu svo slafrað í sig með einum Öl.

Lagt af stað 131

Pulsurétturinn ógurlegi

 

Kv Addi Jón Tryggvi

  

28.06.09

Komum inní Donegal flóa um uppúr miðnætti  mætti okkur þar NA beint í nefið ,sjólagið varð að kröppum vindbárum sem stóðu út flóann. Datt hraðinn alveg niður við þetta  og var reynt að  krussa inn flóan en ferðin gekk seint þó að keyrt væri á mótor með!

Lagt af stað 132

Killybegs frá höfninni séð.

Komum  í höfn í Killybegs sem er Írskur hafnarbær  um 21.30 og höfðum tal af pari sem var að koma af  dorgi fyrir utan bæinn og bentu þau okkur hvar við gætum lagst að höfn

Vorum við 4 skip frá bryggju,  fyrst komu 2 togarar síðan ein seglskúta sem virðist hafa verið  þarna í minnst 2-3 ár ónotuð og svo Mazilda  en við bundum okkur við hana.

Addi  og Tryggvi fóru á rölt og fundu sér  bed and breakfast í miðbænum en Jón Ingi vildi ekki yfirgefa elskuna sína og svaf í skútunni.

 

Jón Ingi Addi Tryggvi

29.06.09

Nú var allt tekið út úr skútunni og þurrkað eftir ágjöf gærdagsins  og GÍRINN tekinn úr , en hann var farinn að snuða á leiðinni.

Að sjálfsögðu var leitað til heimamanna sem eru með mikla þjónustu við útgerðina í bænum og nágrenninu. Fóru Addi og Tryggvi í það að rífa gírinn úr og hafði Jón vökult auga á þessu verki , eftir að þessu var lokið kom heimamaður  og tók gírinn á verkstæði . Þar var hann tekinn í sundur og ææ ekki var það fögur sjón , brotinn hringur,kúplings diskarnir orðnir ansi slitnir og legur litu ekki vel út.

Lagt af stað 141    Lagt af stað 140

Jón og GÍRINN báðir í rusli yfir þessu .

Nú er verið að ath hvort að hægt sé að fá nýja gír frá Englandi  vitum það betur í dag

29.06.09

Að morgni vitum við ekkert enn um gírinn en vonum það besta, komust í netsamband hér á Seawinds bed and breakfast sem er alveg ljómandi góður gististaður og mjög heimilislegur.

Kv frá Killybegs

Tryggvi Jón og Addi

   

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig væri að finna fimmta gírinn eða bara fjórða?

Steinunn (IP-tala skráð) 30.6.2009 kl. 12:33

2 Smámynd: Sigfús Tryggvi Blumenstein

Þetta er ekki alvöru gírkassi bara 1 áfram og 1 afturábak

Sigfús Tryggvi Blumenstein, 30.6.2009 kl. 21:11

3 identicon

Hvað með rallý gírinn? Ef þið finnið hann þá kannski komist þið eitthvað áfram.

Steinunn Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 30.6.2009 kl. 22:33

4 Smámynd: Gunnar Björn

-Þið eruð kaldir kallar,  tuskutogari úr kassafjölum.  Úti á ballarhafi.  Gangi ykkur allt í haginn.

 -Kveðja Gunnar Björn.

Gunnar Björn, 30.6.2009 kl. 22:57

5 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Það eru sem sagt til bjartsýnir Íslendingar, góða siglingu og ég efast ekki um að þið fáið góðar móttökur í Færeyjunum mínum

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 1.7.2009 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband